Welcome to the Matrix!
29.09.2006 17:22:10 / doddij

Gæsir gæsir!!!

Nú á eftir legg ég af stað í ferð vestur á firði á gæsaveiðar. Ég er búinn að fara eina svona semi-gæsaferð í haust og nú er komið að því að taka einn alvöru túr. (sem vonandi heppnast vel) Förinni er heitið vestur (reyndar í há-norður) í Króksfjörð þar sem tengdaforeldrar bróður míns eiga heilmikla jörð. Ég hef aldrei farið þar á gæs áður og verður gaman að sjá hvort gæsabaninn mikli (sem ég held fram að ég sé) eigi eftir að mylja hana niður þar. Nú fór ég í eina mini-ferð austur um daginn þar sem 5 kvikindi voru skotin, en sú ferð var ekki farin til þess að veiða gæsir, heldur var það svona bónus. Á sunnudaginn mun ég svo koma með upplýsingar um hvernig veiðin gekk. Það er fátt betra en að elda sér villigæs og munu nokkrar verða eldaðar í Víðihrauninu í vetur ef að líkum lætur. En nú er víst eins gott að maður standi sig og komi ekki til baka með öngulinn í rassgatinu. Hmmm, hljómar asnalega að koma með öngulinn í rassgatinu af gæsaveiðum. Ætli maður geti þá sagt "með blýið í rassgatinu"?


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:47:54 / doddij

Goodfellas

Mér fannst það vera rétt um daginn að ég var að taka síðasta prófið á vorönninni. Nú skyndilega eru aðeins 6 dagar þar til skólinn byrjar. Ég er búinn að bíða spenntur í allt sumar eftir að skólinn byrji, en núna þegar það er svona stutt í þetta þá er ég eiginlega beggja blands, kvíðinn og fullur tilhlökkunar. Nú er að taka við hálfgert náms-maraþon því það verður teknar 3 annir í röð næsta tæpa árið og svo tekur við 5 vikna sumarfrí áður en allt byrjar upp á nýtt. Auðvitað er þetta spennandi og verður án efa afar gaman, en núna þegar það er svona stutt í þetta er maður samt með smá kvíða í bland við tilhlökkunina. Það verður skemmtilegast að hitta allt fólkið aftur sem var með manni í deild, en núna splittumst við í allar áttir. Ég býst samt við því að við eigum samt alltaf eftir að halda hópinn að vissu marki. Það er sagt að: Einu sinni fruma, ávallt fruma. Býst ég ekki við öðru en það gildi um okkar frumuhóp einnig.

Líst mér einnig ákaflega vel á hópinn sem verður með mér í lögfræðideildinni. Meðal þeirra eru Kristján, Finnbogi og Máni. Það má segja að það sé svona einn af hverri tegund. En hvar skyldu þessir 3 ágætu menn eiga eftir að enda að loknu námi? Byrjum á Kristjáni: Hann á líklega eftir að verða lögmaður fyrir Baugsveldið, el mafioso. Verður gaman að sjá hann við 37 áfrýjun Baugsmálanna. Hann á áreiðanlega eftir að finna leið til að drekkja ákæruvaldinu í eigin skít. En þangað til verður Jón Ásgeir að sætta sig við stanslausar árásir yfirvalda.

Máni. Hmmm. Ja, hvað eigum við að gera við hann? Jú, hann gæti svo sem farið í stjórnmálin en ég er hræddur um að það sé ekkert embætti sem hentar honum nógu vel í þeim. Nema að til verði djammmálaráðuneyti. Ég gæti þó vel séð hann fyrir mér sem yfirmann ÁTVR. Hann gæti án efa eflt þá stofnun mikið vegna sinnar persónulegu reynslu af viðfangsefninu. Þar sem hætta er á að sú stofnun heyri brátt sögunni til þarf ferska menn til að koma inn með nýjar hugmyndir í slíkan rekstur.

Finnbogi Vikar mun verða í fyrsta ráðherrahópi Vinstri grænna. Þá er bara spurning um ráðuneytið. Í sumar ákvað hann að sleppa frystitogaraplássi sem hefði gefið honum 4-5 milljónir í tekjur yfir sumarið í staðinn fyrir að gera það sem hann hafði mestan áhuga á: Að þjálfa 5 og 6 flokk Skallagríms í fótbolta fyrir lúsarlaun. Hugsjónamaðurinn Finnbogi á því ekki heima í fjármálaráðuneytinu. Hann ætti líklega vel heima í umhverfisráðuneytinu og væri þar gott mótvægi við ægivald iðnaðarráðuneytisins sem vill helst drekkja öllu landinu þannig að umhverfisráðuneytið verði óþarft. Það myndi líklega ekki gerast með Finnboga við stjórnvölinn.

En hvar skyldi ég enda?










» 2 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 18:34:14 / doddij

Numerical logician

Í kjölfarið á þrautinni sem ég setti hér fram um daginn datt mér í hug að taka svona IQ-test, eða greindarvísitölupróf. Langaði til að tékka á því hvort ég væri jafn “snjall” og ég fékk á tilfinninguna að ég væri eftir að ég leysti gátu Einsteins. Ég fann flott 50 spurninga próf á netinu sem virkar mjög professional. Að prófinu leystu fékk ég svarið að ég væri með IQ upp á 131. Það á víst að vera nokkuð gott, allavega ef maður miðar við meðal-Sólheimabúa. Mér datt strax í hug að þetta hafi kannski verið slump og ákvað að taka annað þar sem ég hef lítið annað við tíma minn hér í vinnunni að gera. Fann ég það sem á að vera “advanced” próf sem samanstendur af 60 spurningum og þrautum og á að hafa verið notað í langan tíma úti í hinum stóra heimi. Í því fékk ég IQ upp á 133.

 

http://web.tickle.com/tests/superiq/?c=42517&a_code=gJk4gJgZGBi6eBcYGJk1gRm8hBq2gZqqgDETO6GUnlg0&test=superiqogt

Thordur Mar, your IQ score is 133

 

Your overall intelligence quotient is the result of a scientifically-tested formula based on how many questions you answered correctly. But it's only part of what we learned about you from your answers on the test. We also determined the way you process information.

The way you think about things makes you a Numerical Logician. This means that you're exceptionally strong in mathematics and at using logic to solve problems — you have a way with numbers. But that's not all — compared to others you're very detail-oriented, highly organized, and good at understanding things on a complex and abstract level. You're also a quick study when it comes to learning new things or understanding new concepts.

How did we determine that your thinking style is that of a Numerical Logician? When we examined your test results further, we analyzed how you scored on 8 dimensions of intelligence: spatial, organizational, abstract reasoning, logical, mechanical, verbal, visual and numerical. The 3 dimensions you scored highest on combine to make you a Numerical Logician. Only 6 out of 1,000 people have this rare combination of abilities.

Ég varð forvitinn að vita hvað þetta þýddi og fannst lógiskt að ganga út frá að mitt IQ væri bara meðaltal af þessum 2 prófum, eða 132. Út frá þeirri tölu gekk ég og fór því næst inn á síðu þar sem var að finna “definition of IQ”.

 

(linkurinn: http://www.geocities.com/rnseitz/Definition_of_IQ.html )

 

Þar komst ég að því að Albert gamli hefur rétt fyrir sér. Ég er snilli. Samkvæmt síðunni sem ég skoðaði eru aðeins 1% mannfólks með 132 eða hærra IQ og stemmir það við gátuna hans. Oooohh hvað  mér líður vel að vita þetta. Loksins er það staðfest, hehehehe

 

Síðan gerði ég í framhaldinu test sem segir til um hvaða starf eða starfsvettvangur myndi henta mér best og viti menn: Lögfræðingur var talið vera það sem hentaði mér einna best! Þá var einnig tekið fram hvers konar störf ættu ekki við mig, en efst á þeim lista var rafvirki. Ég á sem sagt alls ekki að leggja fyrir mig rafvirkjun. En ég ætla að láta mér líða vel með þessi próf að sinni. Í það minnsta þangað til ég kemst að því að þau séu feik......


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 14:08:35 / doddij

Hvers var fiskurinn?

Snillingurinn Albert Einstein samdi víst þessa gátu á síðustu öld einhverntíma. Sagði hann að 99% jarðarbúa gætu ekki leyst hana. Skemmtileg þraut, en einhvernveginn held ég að Albert gamli hafi nú eitthvað stórlega vanmetið mannkynið því það tók mig satt að segja frekar stuttan tíma að leysa hana. Og ég er sko langt í frá að vera einhver Einstein! En reynið endilega, þetta er virkilega sniðug og skemmtileg þraut hjá kallinum!

1.          Það eru 5 hús í fimm mismunandi litum
2.         Í hverju húsi búa menn af mismunandi þjóðerni
3.         Eigendurnir fimm drekka mismunandi drykk hver, reykja sína tegund af tóbaki hver og eiga hver sína tegund af gæludýri?..
4.         Enginn á sömu tegund gæludýrs, enginn reykir sömu tóbakstegundina eða drekkur sömu drykkjartegund.

Spurningin er : Hver á fiskinn?

Vísbendingar:

A. Bretinn býr í rauðu húsi
B. Svíinn á hund
C. Daninn drekkur te
D. Græna húsið er til vinstri við hvíta húsið
E. Eigandi græna hússins drekkur kaffi
F. Sá sem reykir Pall Mall vindla á páfagauk
G. Eigandi gula hússins reykir Dunhill

H. Maðurinn í miðhúsinu drekkur mjólk
I.  Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu
J.  Sá sem reykir blandað tóbak býr við hlið þess sem á kött
K. Sá sem á hest býr við hliðina á þeim sem reykir Dunhill
L.  Sá sem reykir BlueMaster drekkur bjór
M. Þjóðverjinn reykir Prince
N. Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu
O. Sá sem reykir blandað tóbak býr við hlið þess sem drekkur vatn

Endilega reynið við þetta og commentið um ykkar lausn. Ert þú einn af þessu eina prósenti sem Einstein talaði um?? Hver á fiskinn?


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 12:50:38 / doddij

Shalom!!!

Skrapp til Spánar (Torrevieja) í nokkra daga með dóttur mína og kom til baka aðfaranótt sunnudagsins. Við vorum sem von er mjög spennt að komast í hitann, en svo þegar við komum þangað þá var þar næstum því ólíft vegna hita. Hitinn yfir miðjan daginn nálgaðist 40 gráður sem er svona full mikið fyrir minn smekk. Furðulegt samt hvað maður er tiltölulega fljótur að laga sig að hitanum. Fljótari var ég þó að laga mig aftur að kuldanum á Íslandi, það tekur ekki nema nokkrar mínútur. Engu að síður er nú heitara en yfirleitt áður í sumar og fagna ég því. Það á víst að vera að koma hitabylgja sem standa mun eitthvað fram í vikuna og á hitinn að fara vel yfir 20 gráðurnar.

Hitinn niðri í Ísrael og Líbanon getur orðið ansi mikill þessa dagana og stafar það að þó nokkru leiti af miklu sprengjuregni sem er látið rigna á milli landanna. Eftir því sem maður hefur fylgst meira með málefnum Ísraels þá er ég farinn að skilja betur og betur hvers vegna allir virðast hata þá. Það ótrúlega er að Ísraelsmenn hafa komið sér í valdastöður út um gjörvöll Bandaríkin og er það hverjum manni augljóst að Bússi og co. eru ekkert annað en strengjabrúður Ísraels í málefnum mið-austurlanda. Þá kemur maður að því að auðvelt er að skilja hvers vegna andúð alls arabaheimsins á Bandaríkjunum er svona mikil og djúpstæð.

Það virðist vera nákvæmlega sama hver fer með völdin í Bandaríkjunum, alltaf skulu þeir vernda Ísraelsmenn og öll þeirra ódæðisverk með kjafti og klóm. Hvaða önnur ríkisstjórn myndi komast upp með hefndaraðgerðir gegn saklausum borgurum? Dæmi: Ef Palestínumaður gerir einhvern óskunda í Ísrael og yfirvöld þar hafa ekki vitneskju um hver það var sem ódæðisverkið framdi, þá senda þeir jarðýtur yfir á yfirráðasvæði Palestínumanna og láta handahófskennt jafna 10-15 hús við jörðu!!! Hvað telja Ísraelsmenn sig græða á slíkum aðgerðum annað en enn frekari heift óvina sinna? Ísraelar telja sig vera hina útvöldu þjóð, þeir nánast lifa fyrir biblíuna og orð guðs.

Engu að síður þá lifa þeir nú ekki beint í samræmi við það, nema jú að þeir vita hvað auga fyrir auga og tönn fyrir tönn þýðir. Þeim er að vísu nokk sama hvort augað er tekið úr réttum einstaklingi. Einhver verður að borga. Bara einhver. Í þeirra hug eru allir sekir sem ekki eru af þeirra eigin meiði. Ísraelar virðast ekki hafa lesið neitt um að maður skuli ekki hata náunga sinn. Hatur er þeim í blóð borið og fer það þeim nokkuð vel þar sem allir virðast vera farnir að hata þá. Hverjum skyldi það vera að kenna?








» 0 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 23:37:30 / doddij

Hm er búið, finnst mér

Þvílík vonbrigði. Enn eina ferðina skitu Englendingar upp á bak á stórmóti og féllu nú út á móti Portúgal. Óþolandi að horfa á jafn mikið af stórgóðum leikmönnum sem geta ekki spilað fótbolta sem lið. Þegar Sven Göran tók við fyrir 6 árum síðan leit nú svo sem enska liðið ekki of sannfærandi út, vægast sagt og fyrst til að byrja með virtist sem hann ætlaði að ná einhverju út úr liðinu, byggja upp gott lið. En það hefði átt að vera ákveðið merki um að hann væri ekki hæfur þegar hann gerði David Beckham að fyrirliða. Þvílíkur fyrirliði! Skrípalingur er nær að kalla hann, verri leiðtoga á velli hefur enska liðið væntanlega aldrei haft. Það eina sem maðurinn getur er að taka aukaspyrnur og fyrirgjafir.

Hann getur ekki tæklað, hefur engan hraða, getur ekki sólað og vonlaus að skalla. Og hann á að kallast kantmaður. Nútíma kantmenn verða að hafa hraða og geta tekið menn á. Að vera með Beckham á kantinum er eins og að eyða heilli stöðu í liðinu í nánast ekkert því út úr honum kemur ekkert nema England geti stillt upp í föst leikatriði. Come on, þó hann sé frábær í aukaspyrnum þá eru fleiri menn í liðinu sem geta tekið þær og þá þarf ekki að eyða stöðunni í ekkert. Aaron Lennon gerði meiri usla á kantinum í dag en Beckham hefur gert allt mótið og vona ég að með nýjum þjálfara verði Beckham látinn á bekkinn þar sem hann á heima.

Hreint og beint er það ótrúlegt sjá hversu varfærnisleg taktíkin er hjá herra Eriksson. Flestir knattspyrnuskribentar sem ég hef lesið greinar eftir hafa verið sammála um að taktík hans sé allt of varfærnisleg. Hann beislar einstaklingana að mínu mati. Enginn virðist mega skína, það má ekki taka áhættur og allir verða að leika fyrir liðið. Ég las greinar þar sem menn hreinlega hrópuðu á að Steven Gerrard yrði gefinn laus taumur og fengi að leika sama hlutverk og hann leikur hjá Liverpool, en Sven virðist ekki hafa farið á marga leiki með Liverpool, gæti maður haldið allavega.

Þá velur hann leikmann í hópinn sem hann hefur aldrei séð spila og er augljóslega ekki tilbúinn fyrir stóra sviðið, Theo Walcott. Leikmaður sem Sven svo treysti ekki til að spila eina einustu mínútu á HM!! Engu að síður var hann í framherjavandræðum. Ég er í svo vondu skapi yfir þessu, maður sá að þetta var óumflýjanlegt með þennan sænska fálka við stjórnvölinn. Nú vona ég bara að þjóðverjarnir taki þetta. Best að horfa á Prison break eitthvað fram á nótt til að ná sér niður...








» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 12:09:55 / doddij

Lottó/Lóðó

Ég sótti um lóð í Kópavogi í síðustu lóðaúthlutun. Gerði ég mér strax grein fyrir að það væri ekki stór möguleiki á að fá úthlutuðum skika, en viti menn, ég gat ekki verið nær því að fá lóð án þess að fá lóð. Umsókn mín var metin jöfn einni annarri umsókn um sömu lóð og með mína heppni þá að sjálfsögðu var hin umsóknin dregin út! Þetta var 50/50 séns en ekki datt hann mín megin. “Uppáhalds” stjórnmálamaðurinn minn hann Gunnar Ingi var viðstaddur úthlutunina til þess að “gæta að því að allt færi rétt fram” en hingað til þá hefur verið sérleg vina-, vandamanna- og velunnarastefna (velunnarar fyrirtækis Gunnars, Klæðningar) í lóðaúthlutunum í Kópavogi.

Ásthildur Helgadóttir hin frábæra knattspyrnukona komst inn í bæjarstjórn í Kópavogi í kosningunum um daginn og situr þar við hlið Gunnars Inga. Ég reikna nú með því að eftir þá umræðu sem er farin að skapast um úthlutanirnar að sjálfstæðismenn í Kópavogi séu farnir að passa sig örlítið á því hvernig þeir úthluta lóðum, en ég er þó ekki alveg sannfærður um það. Kom það því ekki á óvart að heyra að Marel Baldvinssyni Breiðabliksmanni hefði verið úthlutað lóð beint án þess að það hafi þurft að draga um hana. Hann einfaldlega hefur verið “talinn ákjósanlegri” umsækjandi en allir aðrir sem sóttu um sömu lóð, nema hann hafi verið sá eini sem um hana sótti, en það verður reyndar að teljast ákaflega ólíklegt í ljósi þess að um 800 manns lögðu inn umsóknir. Ég reikna með að það skemmi ekki fyrir að vera knattspyrnumaður í Breiðabliki þegar maður leggur inn lóðaumsókn í Kópavoginum.

En ég er kannski bara sár yfir að hafa ekki sjálfur verið dreginn út? Mín umsókn var reyndar í það minnsta nógu þóknanleg til þess að hljóta náð fyrir augum bæjarráðs, en því miður ekki nógu þóknanleg til þess að ég fengi að sitja einn að krásunum og ekki kæmi til þess að það þyrfti að draga um hver fengi lóðina. Það kannski dettur inn næst bara, en þá verður það hugsanlega í Garðabænum sem ég sæki um, þar stendur til að úthluta lóðum fljótlega. Í Garðabænum er gott að búa og þar væri ég til í að eiga heima aftur í framtíðinni.


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 14:09:02 / doddij

Sjálfsögð karlréttindi

Nú er maður búinn að vera í rólegheitunum í nokkrar vikur, eða alveg síðan skólinn kláraðist. Verð nú að játa að nú er það orðið frekar þreytt og ég er farinn að vilja gera eitthvað af viti við tíma minn annað en að sofa út á hverjum degi. Jafnvel það getur orðið þreytandi þar sem mikill svefn kallar á enn meiri svefn! Því hlakka ég til að fara að byrja að “vinna” um næstu helgi. Meira hlakka ég þó til fríanna þar á milli því ég hef planað að fara í þónokkra veiðitúra í sumar og stendur til að standa við það.

Ég fagna því að ég var formlega tekinn inn í lagadeildina fyrir nokkrum dögum, en ég fékk bréf frá Bryndísi Hlöðvers þar sem hún segist “hlakka til samstarfs" við mig næstu árin. Væntanlega hafa allir fengið nákvæmlega eins orðað bréf frá henni, en ég hlakka einnig til samstarfs við hana, jafnvel þó hún komi úr röðum kvenréttindakvenna sem eru satt að segja ekki allar skemmtilegar á að hlusta. Ekki það að málefni þeirra séu ekki verðug, heldur hvernig margar þeirra koma þeim frá sér. Þegar það á jafnvel að vera farið að brjóta í bága við kvenréttindalög að talað sé um “hann” þegar átt er við Guð, en ekki “hún” eða “það” þá erum við komin langt út fyrir allt sem kallast jafnréttisbarátta. Þegar baráttan er komin út í slíka sálma þá missir hún marks og fer að verða að tuði og nöldri sem engum finnst marktækt, nema þá helst kvenréttindakonunum sjálfum. Hef ekki kynnt mér skoðun Bryndísar á guðsmálinu, en kannski ég fari að kíkja á það.

Kvenfélögin höfum við karlarnir ætíð látið í friði enda kvenfélög og sjáum við sóma okkar í því að leyfa konunum að hafa þau í friði til að þær geti sinnt sínum hugðarefnum þar án afskipta hins kynsins eins og þær eiga fyllilega rétt til ef þær sjálfar kjósa, en ef stofnað yrði félag með nafninu karlafélag þá brytist nánast út styrjöld þess vegna. Umsátursástand myndi skapast á Lækjartorgi þar sem rauðsokkur landsins myndu fylkja liði dögum eða vikum saman og öskra slagorð gegn karlpeningi landsins. Þær vilja alls ekki leyfa okkur körlunum að hafa okkar Lionsklúbba í friði, nei nei. Það er harðlega að þeim vegið að fá ekki að vera með í þeim, svo harðlega að þær hafa farið í mál til þess að fá inngöngu! Og að sjálfsögðu unnu þær og geta þar með fylgst með öllum okkar gjörðum þar líka og þannig séð til þess að "jafnréttis" sé gætt í hvívetna.

Einnig vilja margar kvenréttindakonur að sett sé í lög að ef 2 jafn hæfir aðilar sækja um sama starfið þá sé konan ætíð ráðin! Er það svo jafnrétti? Ef ég misskil ekki þá er “jafnréttisbaráttan” þar með komin fram úr sjálfri sér og áður en við vitum þurfum við karlarnir að halda fjölmenna fundi niðri á Lækjartorgi og krefjast þess að Guð verði aftur kallaður “hann” og við munum þurfa að grátbiðja um að fá að hittast í stærri hópum án þess að konur þurfi að standa yfir okkur sem einhverskonar eftirlitsmenn, fyrirgefið, eftirlitskonur. Ráðherrar verða að Ráðfrúm og Forsætan Ólafur Ragnar mun drottna yfir Íslandi enn um sinn, eða þangað til "jafn hæf" kona og hann fæst til að taka að sér embættið. Allt þetta og meira til kallast "sjálfsögð kvenréttindi". Hefur enginn tekið eftir að það virðist ekkert vera til sem heitir "sjálfsögð karlréttindi"?

Þrátt fyrir þetta hlakka ég mikið til samstarfsins við Bryndísi, eins og ég hef áður sagt, enda býst ég við því að hún hafi tekið mig inn í deildina á jafnréttisgrundvelli! Því fyrirgef ég rauðsokkunum allt. Allavega þar til konur fara að stefna mér vegna þess að ég vil ekki leyfa þeim að fara með í mínar veiðiferðir. Þá gæti mælirinn fyllst.


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 01:31:30 / doddij

Livet är en uppförsbacke

Um hvað snýst lífið? Stundum er ég hreinlega ekki viss. Hjá ansi mörgum hefur tilgangur lífsins orðið sá að verða sér úti um lífsgæði og ég er farinn að finna mig í þeim hópi. En hvað eru lífsgæði? Þau lífsgæði sem flestir eltast við nú til dags eru að hafa mikið af öllu, öllum veraldlegum gæðum. Maður er viss um að þegar maður á x-mikið meira en maður á þá verði maður sáttur. En þegar maður hefur eignast svo x-mikið af einhverju þá vill maður samt meira, manni finnst það sem maður hefur ekkert meira en það sem maður átti áður þó það sé kannski helmingi meira en það sem maður átti. Það sem sagt veitir manni ekki þá ánægju og maður hélt að það gerði.

 

Þessu má kannski líkja við mann sem kannar landsvæði, hann er viss um að þegar hann kemur upp á ákveðið fjall þá sjái hann allt sem er vert að sjá hinum megin við það, hann eigi eftir að finna frið þegar hann kemst þar upp. En það eina sem hann sér þegar hann kemur upp er annað fjall sem er jafnvel hærra og hann mun ekki finna frið fyrr en hann er búinn að sjá hvað er hinum megin við það.

 

Ég hef nokkrum sinnum á ævinni haft slík fjöll fyrir framan mig og alltaf hef ég þurft að reyna að klifra upp á þau. Oft hefur mér ekki þótt jafn spennandi að vera niðri í dalnum, ég hef fundið þörf fyrir að ná einhverju meira. Alltaf eitthvað meira og betra. En svo að sjálfsögðu þegar upp er komið þá er það ekkert merkilegt. Meira er ekki endilega alltaf betra.

 

Þegar maður horfir á myndir af liðnum atburðum þá hugsar maður með sér: “þetta voru góðir tímar”. Maður saknar alltaf þess sem maður hefur ekki lengur fyrir framan sig eða hefur misst. En á meðan þeir tímar sem maður saknar voru að gerast þá fannst manni þeir ekki vera neitt sérstaklega merkilegir, bara hversdagsleikinn uppmálaður eiginlega.

 

Þegar maður hugsar um slíka hluti þá horfir maður til framtíðar, þá er yfirleitt eitthvað fjall sem maður sér fyrir framan sig. Fjall til að klífa. Það sem engu að síður gleymist er hin líðandi stund, núið. Hvað er svona erfitt við að lifa í núinu og vera sáttur við sitt? Að maður geti verið sáttur við það sem maður hefur í dag og þessi tálsýn að meira sé alltaf betra skuli alltaf villa manni sýn.

 

Hin sönnu lífsgæði geta sennilega að miklu leiti falist í að njóta hvers augnabliks. En hvað veit ég um það? Mér hefur ekki tekist nógu vel að venja mig á það ennþá. Það verður þá bara að vera næsta takmark mitt. Mín næsta fjallganga.


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.02.2006 22:08:29 / doddij

Vinsældabloggið

Svo ótrúlega sem það nú hljómar þá á dóttir mín eina vinsælustu bloggsíðu á landinu undanfarið. Síðan hennar er á toppnum á vinsælustu bloggsíðunum á blogcentralnum! Ég skil ekki upp né niður í þessum vinsældum þar sem hún hafði ekki einu sinni farið inn á síðuna sína sjálf í nokkrar vikur. Síðast þegar hún fór inn á síðuna þá voru um 500 heimsóknir á hana og nú allt í einu eru þær tæplega 60.000 og bætast nú við 3-400 manns á hverjum klukkutíma!!!! Nú langar mig að vita af hverju þetta er svona. Hvernig getur staðið á því að bloggsíða tæplega 10 ára barns getur verið heimsótt tugþúsundum sinnum á fáeinum vikum? Ja, maður spyr sig.


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.01.2006 16:37:04 / doddij

Ég bý í gám!

Nú er maður fluttur úr Hamragörðunum og í gámahverfið fræga. Ég var beðinn að “plííís ekki blogga um það” en ég er að hugsa um að gera það bara samt! Mér leist nú svona lala á að fara að búsetja mig í gám, en svo eftir að ég er kominn hérna inn þá sé ég að þetta er bara eins og hver önnur íbúð, hún er eiginlega bara alveg prýðileg! Ég fékk nokkra jaxla til að hjálpa mér með dótið mitt yfir í gær og við vorum snöggir að þessu. Svo er þetta náttúrulega helmingi stærra en "skápurinn" í Hamragörðunum. Talandi um skápa þá væri ég alveg til í að ísskápurinn færi að virka, en ég setti hann í samband í gær og hann gengur á fullu..... en það er ennþá jafn heitt inní honum og í íbúðinni sjálfri, eða jafnvel heitara!! Núna ætla ég hins vegar að taka minn tíma í að koma mér almennilega fyrir, það er ótrúlega gott að fá pláss fyrir föt og ýmist annað, það er að segja að þurfa ekki að hlaða fötum og mat inn í sama skápinn! Ekki það að Hamragarðarnir eru fínir og allt það, en það hentar ekki öllum að búa í slíkum þrengslum sem þar eru, allavega ekki mér. Jæja, það er best að fara að ganga frá gömlu íbúðinni, maður á víst enn eftir að þrífa og svoleiðis L . En í kvöld klukkan 7 er leikur í handbolta, Ísland-Danmörk og ég læt nú ekki koma í veg fyrir að ég mæti að horfa á hann og þá tek ég væntanlega eina ölkrús með, eða tvær.

Áfram Ísland!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.01.2006 15:22:48 / doddij

Home sweet home

Þá er maður kominn til baka á Bifröstina, en það er samt nóg eftir af fríinu!!! Ég er búinn að eyða jólum og áramótum á Kanarí ásamt dóttur minni og það var vægt til orða tekið frábært ef maður undanskilur þá staðreynd að einhverjir “banditos” fóru inn í íbúðina mína á jóladag og rændu og rupluðu, m.a. vídeótökuvélinni, símanum, veski með öllum kortum og peningum. Það kom mér virkilega á óvart en ég ákvað undir eins að láta þetta ekki hafa nein áhrif á fríið og hugsaði ekki einu sinni um þetta fyrr en reynt var að brjótast inn aftur hjá okkur á gamlárskvöld!!

Maður hélt að allt væri svo “safe” á þessu hóteli, en það var nú fjarri því heldur betur. Sumarferðir auglýsa þetta svoleiðis upp og sem mjög góðan stað til að vera með börn á!!! Já, það telst ekki öruggt í mínum augum að vera með börn á stað þar sem glæpamenn geta gert það sem þeim sýnist, en þeir hjá Sumarferðum eru á öðru máli, en þeir vita af því að áður hafa verið vandamál með þjófnaði á hótelinu. Sendi ég þeim bréf þar sem ég fór í gegnum gríðarlega annmarka á öryggi innan hótelveggjanna en þeir hafa ekki séð ástæðu til að svara því. Þjónustulundinni eitthvað áfátt þar. Búnir að tékka inn aurinn frá mér og þá er málinu greinilega lokið af þeirra hálfu.

Hvað um það, eftir standa frábærar minningar sem ekki er hægt að stela frá okkur. Ég fann fyrir því þegar ég kom í bæinn að ég var farinn að sakna þess að vera á Bifröst og dreif mig uppeftir undir eins. Hér er nefnilega mjög gott að vera. Þrátt fyrir að hafa aðeins verið hérna í nokkra mánuði fannst mér ég vera kominn heim er ég kom til baka. Home sweet home.


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 13:41:47 / doddij

Prófavikan ægilega

Þá er fyrsta prófið búið og það gekk bara prýðilega held ég. Svo er reyndar aldrei að vita hvort maður hafi verið að gera tómar klaufavillur og útkoman verði daprari en ég held á þessari stundu, síðan gæti ég náttúrulega líka einfaldlega verið heimskari en ég held? Kemur í ljós, en ég næ allavega pottþétt, það leyfi ég mér í það minnsta að fullyrða. Svo á morgun tekur við upplýsingatæknipróf og ætti ég í raun að vera að fara í gegnum námsefni vetrarins á þessari stundu í staðinn fyrir að vera að skrifa inn á bloggsíðuna mína sem enginn hefur einu sinni tíma til að kíkja á núna því allir eru að einbeita sér að prófunum. Kannski hálfgert kæruleysi í mér bara en ég er eitthvað svo stresslaus yfir þessum prófum núna. Hver veit nema það komi í bakið á mér þegar einkunnirnar koma í hús?


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 14:57:45 / doddij

Himnaríki eða Helvíti

Í himnaríki er lögreglan bresk, matreiðslumennirnir ítalskir, vélvirkjarnir þýskir, elskendurnir franskir og öllu er stjórnað af svisslendingum.

Í helvíti er lögreglan þýsk, matreiðslumennirnir breskir, vélvirkjarnir franskir, elskendurnir svissneskir og öllu er stjórnað af ítölunum!


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.11.2005 22:33:47 / doddij

Gump, Forrest Gump

Hvað tekur við eftir námið? Á ég örugglega eftir að klára með stæl, eða klára yfirleitt? Er ég kom hingað var ég mjög bjartsýnn á námið og er það reyndar enn. En það er samt svoleiðis í lífinu að ekkert er öruggt. Ég gæti allt í einu misst móðinn og hætt, eins gætu komið upp fullt af hlutum eða atvikum sem gerðu að ég gæti ekki klárað námið. Hver veit nema ég verði næsti maður til að sturlast á háskólasvæðinu og verði fyrir vikið rekinn? Hver veit nema ég gerist sekur um að copy-paste-a verkefni og það verði mér að falli? Hvað veit ég nema ég muni á einhverjum tímapunkti þykja óæskilegur sem nemandi við skólann og verði hrakinn burt? Ég gæti einnig lent í slysi og örkumlast þannig að ég ætti ómögulegt um vik að klára námið. Það er ótal margt sem gæti komið í veg fyrir að ég klári námið hér, en til hvers að velta sér upp úr því?

Býst ég nú ekki við öðru en að klára nám mitt og að gera það með sóma. Er því lýkur sé ég sjálfan mig fyrir mér á mörgum stöðum. Erfitt er þó að spá á þessari stundu hvað maður endar á að gera, hvers konar frama ég vel mér, eða hvaða frami velur mig. Það fyrsta sem ég stefni þó á að gera er námi lýkur er að byrja á að koma mér upp framtíðarheimili og það skal byggt með eigin höndum. Hljómar kannski furðulega að vera í viðskiptaháskóla og fara síðan að tala um húsbyggingar, en kannski er ég ekkert annað en draumóramaður? Ég hef fengið margar skrýtnari hugmyndir um dagana en þegar eitthvað blundar í mér sem mig langar að gera þá finnst mér að maður eigi að gera það án þess að hika og það hef ég margoft gert. Að láta hugmyndir sínar verða að veruleika er ákaflega þægileg tilfinning. Það var einmitt þess vegna sem ég kom hingað á Bifröst, til að eltast við draum sem var farinn að byltast inní mér og halda fyrir mér vöku. Ég sá stóra hluti sem voru ætlaðir mér og allir tengjast þeir því að ég klári nám. Það undir mér komið að láta það verða að veruleika, ég fékk tækifæri lífs míns er ég komst að sem nemandi hér. Ég ætla ekki að láta það tækifæri renna mér úr greipum. Árin sem nú fara í hönd munu skera úr um hvernig restin af lífi mínu verður. Lífið er fullt af tækifærum, best að kreista eitthvað út úr því áður en ljósið slokknar, ég tel að ég geti  stjórnað flestu um mín örlög, en sætti mig við að ég fæ engu um það ráðið hvenær það gerist. Until then:

 

 

 

"life is like a box of chocolates, you never know what you´re gonna get”


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2